Forsíða :: Deildir :: Háteigur :: Fréttir
Prenta vefsíðu
Áskrift að fréttum
25. janúar 2012 08:46

Heimsókn í Byggðasafnið

Í tilefni þorrans og vinnu okkar í leikskólanum um gamla tímann fóru elstu börnin í leikskólanum í heimsókn í Byggðasafnið. Jón Allansson safnstjóri tók á móti okkur og fór með okkur um allt safnið. Hann sýndi og sagði meðal annars frá sjómennsku á árum áður, hvernig matur var verkaður og hvernig fólk bjó. Einnig fengum við að skoða skóvinnuverkstæði, rakarastofu, tannlæknastofu, bíla og leikföng frá því í "gamla daga".

Við þökkum Jóni kærlega fyrir mótttökurnar og hvetjum foreldra til þess að fara með börnin sín í Byggðasafnið 

 

 
Teigasel | Laugarbraut 20 | 300 Akranes | Sími: 431-1898 | teigasel@akranes.is