Forsíða :: Deildir :: Háteigur :: Fréttir
Prenta vefsíðu
Áskrift að fréttum
27. janúar 2012 08:17

Rafmagnslaus dagur

Í dag, föstudag, er rafmagnslaus dagur hjá okkur í Teigaseli. Við höfum rafmagnslausan dag einu sinni á ári, á þorranum því þá erum við að læra um það hvernig fólk hafði það í "gamla daga".

Börnunum finnst þetta mörgum mjög merkilegt því það er ekki hægt að hlusta á tónlist, strauja perlur eða annað sem okkur finnst svo sjálfsagt að gera dags daglega. Í morgunverð er því enginn hafragrautur og í hádeginu fáum við skyr því það er auðvitað ekki heldur hægt að nota rafmagnstækin í eldhúsinu.

 

 
Teigasel | Laugarbraut 20 | 300 Akranes | Sími: 431-1898 | teigasel@akranes.is