Forsíða :: Deildir :: Háteigur :: Fréttir
Prenta vefsíðu
Áskrift að fréttum
20. febrúar 2012 14:19

Bolludagur - sprengidagur - öskudagur

Eins og aðrir landsmenn höldum við bolludaginn, sprengidaginn og öskudaginn hátíðlegan í Teigaseli. Í dag, bolludag, eru fiskibollur og tilheyrandi í hádegismat og vatnsdeigsbollur með rjóma í eftirrétt. Á morgun, sprengidag, er svo boðið upp á saltkjöt og baunir í hádeginu og allir borða sig sprengsadda. Á öskudaginn mætum við svo í náttfötunum, hittumst öll í salnum og "sláum köttinn úr tunnunni" eins og undanfarin ár. Þegar "tunnan" opnast veltur venjulega eitthvað góðgæti úr henni og eigum við von á að svo verði einnig þetta árið :)

 

Samkvæmt Vísindavef Háskóla Íslands, hafa þróast ýmsir siðir í gegnum tíðina í kringum bolludag, sprengidag og öskudag.  Athyglisvert er að bolludagur (sem væntanlega fékk ekki nafnið fyrr en snemma á 20. öld) og öskudagur hafa að nokkru leyti skipt um hlutverk. Lengi vel var mánudagurinn í 7. viku fyrir páska hefðbundinn frídagur barna í skólum og þá tíðkaðist víða um landið að „marséra“ í grímubúningum og að slá köttinn úr tunnunni, seint á 19. öld. Þeir siðir hafa væntanlega borist frá Danmörku eða Noregi. Árið 1917 hafði frídagurinn verið færður yfir á öskudaginn víðast hvar á landinu og siðirnir fluttust með.

 

Ein er sú hefð tengd öskudeginum sem ekki finnst annars staðar en á Íslandi, en það er sú venja að hengja öskupoka á fólk. Kannski má rekja upphaf þess til katólskunnar og krafts öskunnar sem gjarnan var mögnuð með heilögu vatni. Sóttu menn í að taka ösku með sér heim úr kirkjum til að blessa heimilið.Hér skiptist pokasiðurinn lengi vel í tvennt eftir kynjum: konur hengdu öskupoka á karla en karlar poka með steinum á konur. Líklegt er að ólík kynjahlutverk og aðgengi að hlutum hafi þar skipt máli, en lykilatriði hjá báðum kynjum var að koma pokunum fyrir svo að fórnarlambið tæki ekki eftir því.

 

 

 

 
Teigasel | Laugarbraut 20 | 300 Akranes | Sími: 431-1898 | teigasel@akranes.is