Á Teigakoti var starfsmaður að spyrja börnin um kynin.

Starfsmaður við stelpu: Ert þú stelpa eða strákur?

Stelpa: Nei, ég er pæja :) 

Forsíða :: Deildir :: Teigakot :: Fréttir
Prenta vefsíðu
Áskrift að fréttum
15. maí 2012 03:42

Margt um manninn á Opnu húsi

Í dag 15. maí er Alþjóðadagur fjölskyldna og af því tilefni höfðum við hér í Teigaseli opið hús milli kl. 9:30 og 11:00. Margt var um manninn því margir komu í heimsókn og við byrjuðum á því að syngja fyrir gestina í troðfullum salnum, fyrst Teigakot, þá Miðteigur og loks Háteigur.  Boðið var upp á kaffi og nýbakaðar kleinur sem runnu ljúflega niður. Listaverk sem við höfum verið að vinna að undanfarið voru til sýnis og ljósmyndum af börnunum í starfi og leik var  varpað upp á vegg í salnum.

Alltaf er gaman að fá gesti og eiga með þeim notalega stund, þó oft finnist sumum ansi erfitt að kveðja. Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna.

meira...
11. maí 2012 03:46

Hjóladagurinn 2012

Í dag fengu allir að koma með hjólin sín í leikskólann. Hjólin voru af öllum stærðum og gerðum; þríhjól, jafnvægishjól, tvíhjól með hjálpardekkjum og án hjálpardekkja, hlaupahjól og línuskautar. Allir komu að sjálfsögðu með hjálmana sína enda umferðarvika að enda hjá okkur og allir mjög meðvitaðir um mikilvægi hjálma.

Götunni var lokað við Akurgerði og börnin fengu að hjóla út um allt, bæði í garðinum og á bílastæðinu og götunni fyrir framan leikskólann. Þetta fannst þeim virkilega ánægjulegt og voru allir mjög duglegir að æfa sig að hjóla.

Eftir hádegið hjóluðum við bara í garðinum.

Myndir frá deginum eru komnar í myndasafn á forsíðu.

 

meira...
9. maí 2012 06:14

Laust starf deildarstjóra

Laus er til umsóknar staða deildarstjóra við leikskólann Teigasel.

Teigasel er þriggja deilda leikskóli með 74 börnum og hópi metnaðarfullra starfsmanna. Um er að ræða stöðu deildarstjóra til eins árs, æskilegt er að viðkomandi geti sinnt undirbúning á í júní.

Deildarstarf hefst 8/8 2012.

 

Menntunar- og hæfniskröfur:


Leikskólakennaramenntun áskilin
Færni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði í starfi
Stundvísi
Jákvæðni og áhugasemi
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð


Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. júní 2012


Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2012
Vakinn er athygli á að starfið hentar jafnt konum sem körlum

Launakjör eru samkvæmt kjarasamning KÍ

Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Þóra Jónsdóttir, leikskólastjóri, netfang: margret.thora.jonsdottir@akranes.is

Umsækjendum er bent á að sækja um rafrænt heimasíðu Akraneskaupstaðar eða senda skriflegar umsóknir til skrifstofu Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 300 Akranes. Sækja umsóknareyðublað. 

Umsækjendum er bent á að kynna sér verklagsreglur um ráðningar hjá Akraneskaupstað á heimasíðu kaupstaðarins www.akranes.is

 

meira...
27. apríl 2012 10:53

Óvæntir gestir úr Nornaveiðum í alstund

Okkar mánaðarlega alstund var haldin í salnum í morgun, þar sem allar deildir koma saman og syngja og skemmta sér.

Í þetta sinn fengum við óvænta og skemmtilega heimsókn. Þrír leikendur úr söngleiknum Nornaveiðar sem Grundaskóli setti upp nú í vor, komu og sungu fyrir okkur nokkur lög við mikla hrifningu nemenda okkar á Háteig, sem margir hverjir kunna flest lögin utanað. Fyrir nemendur á Miðteig og Teigakoti var þetta einnig virkilega mikil upplifun, því nornin Mínerva var með í för, þau voru samt ekkert mikið hrædd við nornina, enda tilkynnti hún þeim að hún væri hætt að vera vond, væri góð núna.

Við þökkum þeim kærlega fyrir góða skemmtun.

meira...
25. apríl 2012 03:45

Dugleg að tína rusl á Degi umhverfisins

Í dag er Dagur umhverfisins og af því tilefni fóru öll börnin á Teigaseli út að tína rusl. Börnin á Teigakoti tíndu inni í garðinum en börnin á Miðteig og Háteig fengu að fara út fyrir garðinn og hreinsa til á bílastæðunum.

Þetta fannst þeim flestum afar spennandi verkefni. Þar sem við höfum mikinn áhuga á bæði umhverfismennt og stærðfræði ákváðum við að samþætta þessar greinar og vigta allt ruslið sem við myndum finna. Það gerðum við í lokin og afraksturinn í þremur stórum ruslapokum vigtaðist alls 33,5 kíló.

Myndir frá deginum eru komnar hér inn á forsíðuna.

 

meira...
30. nóvember 2011 02:41

Syngjum saman á degi íslenskrar tónlistar kl. 11:15

Á morgun fimmtudaginn 1. desember verður dagur íslenskrar tónlistar haldinn hátíðlegur og í tilefni hans munu allar útvarpsstöðvar landsins spila þrjú íslensk lög samtímis kl. 11:15. Markmiðið er að fá sem flesta til að sameinast fyrir framan útvarpið á þessum tíma og syngja með til heiðurs íslenskri tónlist.

 

Lögin sem um ræðir eru Kvæðið um fuglana eftir Atla Heimi Sveinsson við texta Davíðs Stefánssonar sem byrjar á línunum Snert hörpu mína himinborna dís, Manstu ekki eftir mér, lag Ragnhildar Gísladóttur við texta Þórðar Árnasonar og Stingum af eftir Mugison. Textar eru fáanlegir á vefsíðu stef.is og uton.is, undir „syngjum saman“.

 

Við hér í Teigaseli höfum virkilega gaman að söng og ætlum því að sjálfsögðu að taka þátt. Þó börnin kunni ekki öll þessi lög ætlum við samt að sameinast á sal kl. 11:15 og kveikja á útvarpinu, því við starfsfólkið munum taka hraustlega undir með útvarpinu og skemmta okkur og vonandi börnunum í leiðinni.

 

meira...
26. október 2011 02:02

Alþjóðlegi bangsadagurinn

Á morgun, fimmtudaginn 27. október, er Alþjóðlegi bangsadagurinn. Af því tilefni mega börnin koma með bangsann sinn í leikskólann.

 

Muna þarf að merkja bangsana vel svo þeir rati heim til sín aftur, því von er á mörgum böngsum í heimsókn.

 

 

meira...
 
Teigasel | Laugarbraut 20 | 300 Akranes | Sími: 431-1898 | teigasel@akranes.is