Skagaforeldrar eru samtök foreldrafélaga á Akranesi. Samtökin samanstanda af fulltrúum og varafulltrúm úr hverjum skóla (leikskóli, grunnskóli og fjölbrautarskóli) á Akranesi og einum starfsmanni Akraneskaupstaðar.
Markmið samtakanna eru:
- að standa vörð um réttindi barna til menntunar og þroska
- að beita sér fyrir auknum áhrifum foreldra á skólastarf
- að stuðla að skipulegu samstarfi aðildarfélaganna
- að vera sameiginlegur málsvari foreldra gagnvart sveitarfélagi og stjórnvöldum
Markmiðum þessum hyggjast samtökin ná meðal annars með því:
- að fylgjast með framkvæmd leik-, grunn- og framhaldsskólalaga og námsskrám og beita sér fyrir umbótum í skólastarfi
- að afla reglulega upplýsinga um starf foreldrasamfélagsins og miðla þeim
- að stuðla að opinberri umræðu um skóla- og uppeldismál, m.a. með ársþingum, félagsfundum, málþingum, ráðstefnum, greinaskrifum og myndun starfshópa
- að starfa með öðrum samtökum og félögum sem sinna málefnum barna og foreldra á Íslandi og í nálægum löndum í samstarfi við Landssamtökin Heimili og skóla.
Sjá frekari upplýsingar um starfsreglur samtakanna á http://www.skagaforeldrar.is/
Fulltrúar Teigasels í Skagaforeldrum eru:
Hildur Björnsdóttir, fulltrúi foreldra, aðalmaður. hildur.bjornsdottir@akranes.is
Arnheidur Helgadóttir, fulltrúi foreldraráðs Teigasels, varamaður. arnheidur.helgadottir@akranes.is