Forsíða :: Um skólann :: Stærðfræðin í Teigaseli
Prenta vefsíðu

Stærðfræði

Stærðfræði er að finna alls staðar í starfi leikskóla og er hún samofin hinum ýmsu námsþáttum sem unnið er eftir samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla. Undanfarin ár hefur orðið mikil hugarfarsbreyting í notkun stærðfræði innan leikskóla og augu fólks opnast fyrir því hvað börnin eru móttækileg fyrir undrum stærðfræðinnar.

Í Teigaseli er búið að vera að vinna með stærðfræði og stærðfræðihugtök frá því skólinn var stofnaður.  Á skipulagsdegi í ágúst 2005 fengum við Guðbjörgu Pálsdóttur kennara við KHÍ til að halda fyrir starfsfólkið námskeið í stærðfræðikennslu.  Með henni var leikskólakennaranemi frá leikskólanum Sjónarhóli í Reykjavík, sem kynnti fyrir okkur stærðfræðiverkefni sem verið er að vinna að í þeim leikskóla.  Síðar um haustið hafði Ólöf Björg Steinþórsdóttir, lektor við University of North Carolina, Chapel Hill, USA  samband við okkur og óskaði eftir þátttöku okkar, ásamt leikskólanum Sjónarhóli, í rannsókn sem hún er að vinna að og fjallar um stærðfræðikennslu byggða á skilningi barna. 

Það er ljóst að heilmikil vinna bíður okkar, sem verður bæði krefjandi og skemmtileg en umfram allt kemur hún til með að færa okkur aukinn skilning á námsefninu stærðfræði sem og á námshæfni barna. 

Þróun stærðfræðikennslu í Teigaseli 1998-2006

Þegar leikskólinn Teigasel tók til starfa árið 1998 var stefna leikskólans mörkuð og fyrir valinu varð að bjóða upp á opinn efnivið og heiltæka skólastefnu. Opinn efniviður var nýtt viðfangsefni hér á Akranesi á þeim tíma og þótti undarleg stefna og átti erfitt uppdráttar fyrstu árin.

Meðal þess opna efniviðs sem var nýr í leikskólastarfinu voru einingakubbar sem kenndir eru við Caroline Pratt og byggir notkun þeirra á hugmyndafræði hennar. Strax á haustdögum 1998 fengum við Jónínu Tryggvadóttur kennara í Kennaraháskóla  Íslands til að halda námskeið í notkun einingakubbana.  Á námskeiðinu  opnaðist fyrir okkur nýr heimur í leikskólastarfi. Það að geta á svo einfaldan hátt með notkun kubbana lagt inn stærðfræði í gegnum leik barnanna. Notkun einingakubbana hefur verið fastur liður í starfi leikskólans og aukist ár frá ári. Kubbanámskeið hafa verið haldin tvisvar sinnum síðan, til að koma til móts við nýtt starfsfólk og efla notkun kubbanna.

Haustið 2002 sótti Guðbjörg Gunnarsdóttir leikskólastjóri námskeiðum breyttar áherslur í stærðfræði, sem haldið var í grunnskólanum á Álftanesi.  Kom hún með margar nýjar hugmyndir sem við sáum að við gætum nýtt okkur í leikskólanum.  Í kjölfarið var keypt í leikskólann þróunarverkefni Nóaborgar „Stærðfræði – leikur,” sem okkur þótti mjög áhugavert. Í framhaldi af því varð síðan frekari þróun í stærðfræðikennslu  hér í Teigaseli.

Við undirbúning vetrarstarfsins  á elstu deildinni fyrir skólaárið 2002-2003 ákvað væntanlegur deildarstjóri Katrín Barðadóttir að nota hinar góðu hugmyndir sem var að finna í þróunarverkefni Nóaborgar til að útbúa námsáætlun í stærðfræði.  Notaður var sá efniviður sem til var á deildinni, m.a. einingakubbar, rökkubbar og sætisgildiskubbar. Auk þess var tölvan mikið notuð til að vera í ýmsum stærðfræðileikjum. Á foreldrafundi að hausti var óskað eftir aðstoð foreldra við að safna í smáhlutasafn.

Eftir þennan fyrsta vetur í markvissri vinnu með stærðfræði á Háteig. kom það starfsfólki mest á óvart hversu mikið er af stærðfræði allt í kringum okkur, í hinu daglega starfi.  Auk þess sem starfsfólkið var meðvitaðra um að nýta og grípa tækifærin í dagsins önn til að koma stærðfærðinni beint og óbeint að í leik og starfi barnanna.

Næsta skólaár á eftir, 2003-2004,  tók nýr deildarstjóri við á Háteigi, Guðrún Erla Guðlaugsdóttir. Hún endurbætti og stækkaði stærðfræðiáætlunina sem til var og meðal þess sem bætt var við voru verkefni úr Geitungnum, sem er  kennslubók fyrir byrjendur í stærðfræði. Að hausti hélt Ásta Egilsdóttir grunnskólakennari fyrirlestur hér í leikskólanum um stærðfræði þar sem fram komu mikið af nýjum hugmyndum um notkun stærðfræði í leikskólastarfi. Eftir þennan fyrirlestur vorum við okkur enn betur meðvituð um stærðfræðina í  daglegu lífi í leikskólans.

Vorið 2004 fór starfsfólk Teigasels í náms- og kynnisferð til Malmö í Svíþjóð. Meðal þess sem lagt var upp með við skipulagningu ferðarinnar var að skoða stærðfræðileikskóla. Það segir mikið um aukinn áhuga alls starfsfólksins á notkun stærðfræðinnar í leikskólastarfinu. Námsferðin var mjög áhugaverð og komum við heim með ótal hugmyndir í farteskinu til að auðga stærðfræðina í Teigaseli.

Skólaárið 2004-2005 varð enn frekari þróun í stærðfræði hér í Teigaseli í kjölfar námsferðarinnar. Á Háteigi urðu áherslubreytingar í starfi deildarinnar þar sem samþætt nám er nú grunnurinn að hópastarfinu. Ekki er um eiginlega stærðfræðihópatíma að ræða eins og áður, heldur er unnið er með stærðfræðiáætlunina til hliðsjónar í hópastarfi og samverustundum. Inn í vetraráætlun deildarinnar koma svo ýmsar skemmtilegar kannanir sem við sáum hugmyndir að í námsferðinni. Má þar nefna ýmsar talningaaðferðir, sem börnin taka virkan þátt í og tengjast þekkingar- og reynsluheimi þeirra.  Dæmi um það eru:

  •  Götutalning, þar sem talið er hversu margar götur þarf að fara yfir á leiðinni frá leikskólanum og heim til barnsins.  Framkvæmdin er á þann hátt, að börnin eru með íspinnaspýtur og ein spýta er sett í poka þegar farið er yfir götu og þær síðan taldar.  Upplýsingarnar eru síðan skráðar og útbúið súlurit þar sem lokaniðurstöður koma fram á mjög sjónrænan hátt.

  • Mætingakönnun. Undirbúningur hefst á því að börnin gera 5 sjálfsmyndir.  Kennarinn útbýr óútfyllt súlurit, með dagsetningum og fjölda barna.  Börnin líma síðan mynd af sér þegar þau koma í leikskólann, með aðstoð foreldra sinna.  Niðurstöðurnar sýna hversu mörg börn komu í leikskólann hvern dag í eina viku.

  • Farartækjakönnun.  Í upphafi er haldinn vinnufundur, þar sem rætt er með hvernig farartækjum hægt er að koma í leikskólann.  Ýmsar skemmtilegar hugmyndir koma upp á þessum vinnufundum og eru allar hugmyndir teknar góðar og gildar.  Börnin teikna farartækin og eru myndirnar límdar á skráningarblað sem hengt er upp í fataherbergi.  Þegar þau koma í leikskólann merkja þau við á hvaða farartæki þau komu þann daginn (notaður er mismunandi litur dag frá degi) með því að strika við myndina. 

Með þeirri vitundarvakningu sem hefur orðið í Teigaseli, hefur áhuginn færst inn á aðrar deildir skólans og hefur m.a. Guðrún Erla Guðlaugsdóttir, leikskólakennari á Miðteigi útbúið stærðfræðiáætlun sem unnið er með í hópastarfi.  Hópastarfið á Miðteigi er skipulagt eftir námssviðum Aðalnámskrár leikskóla og er unnið markvisst með hvert námssvið fyrir sig. Stærðfræðin var því kjörin viðbót við námsviðin og hefur starfið gengið mjög vel.  Á yngstu deild (Teigakoti) fer einnig fram talning og flokkun m.a. í könnunarleiknum, en byrjað var að vinna markvisst með hann haustið 2003.

Þó stærðfræðin tengist mikið daglegu starfi, notum við einnig ýmis kennslugögn til stærðfræðikennslu, sem eru ýmist keypt eða heimatilbúin m.a.: 

  • Einingakubba

  • Rökkubba

  • Sætisgildiskubba

  • Kappla kubba

  • Ýmis spil, s.s. Yatzy, bingó o.fl.

  • Talning í númeraða bakka

  • Talnagrind, notuð við ýmis verkefni

  • Flokkun eftir tölum, stærðum og gerðum

  • Ýmis kennsluforrit o.fl.

Hér í Teigaseli hefur því orðið mikil þróun á undanförnum árum í notkun stærðfræðinnar í leik og starfi með börnunum og erum við sífellt að koma auga á nýjar og fleiri leiðir til að kynna stærðfræðina fyrir börnunum á jákvæðan og skemmtilegan hátt.  Teljum við að þau búi að þessum grunni þegar að grunnskólagöngunni kemur.

 
Teigasel | Laugarbraut 20 | 300 Akranes | Sími: 431-1898 | teigasel@akranes.is