Í byrjun aðventu var aðeins farið að huga að jólalögunum. Nokkrar 5 ára stelpur voru að syngja og dansa "Göngum við í kringum" og sungu: ... Siggi er í sínum buxum, Solla í bláum kjól... 

Forsíða :: Um skólann :: Starfsmannakver
Prenta vefsíðu

Starfsmannakver

Starfsmannakver Teigasels hefur að geyma ýmsar hagnýtar upplýsingar varðandi réttindi, skyldur, reglur og hefðir sem í gildi eru fyrir starfsmenn leikskólans.

Deildir

 Í Teigaseli eru þrjár deildir:

  • Háteigur er deild elstu barnanna (4-5 ára)
  • Miðteigur er deild mið-barnanna ( 3-4 ára)
  • Teigakot er deild yngstu barnanna (2-3 ára)

Aldur barnanna á deildum ræðst samt fyrst og fremst af biðlista og getur verið breytilegur frá ári til árs.

Aðlögun

 Stefna leikskólans er sú að nýir starfsmenn fái a.m.k. einn dag í aðlögun, undir leiðsögn annars starfsmanns.  Því miður reynist það ekki alltaf mögulegt.  Deildarstjórar bera ábyrgð á leiðsögn nýrra starfsmanna.

Reynslutími

Þrír fyrstu mánuðirnir í starfi eru reynslutími bæði  fyrir nýjan starfsmann  og vinnuveitanda.  Meðan á reynslutíma stendur er gagnkvæmur uppsagnarfrestur einn mánuður, en að honum loknum er hann þrír mánuðir. 

Trúnaður

Þegar starfsmaður skrifar undir ráðningarsamning, skrifar hann jafnframt undir yfirlýsingu þess efnis að hann gæti þagmælsku um atriði sem hann fær vitneskju um í starfi.  Mikilvægt er að starfsfólk virði þennan trúnað, því brot á honum getur leitt til uppsagnar.

Kaffitímar

Samkvæmt kjarasamningum eru kaffitímar að morgni 15 mín. en 20 mín. eftir hádegi.  Við tókum þá ákvörðun að hér væri réttur fólks til hvíldar jafnmikill, burtséð frá því hvorum megin við hádegi það vinnur, og fá því allir starfsmenn 20 mín. kaffihlé.

Viðveruskylda er á vinnustað í kaffitímum.  Ef starfsmaður þarf að „skreppa“ í kaffitímanum sínum, þarf hann leyfi og samþykki deildarstjóra.

Fæði

Þeir starfsmenn sem vinna í hádeginu, fá  frían hádegisverð.

Starfsmenn sem borða morgunverð, hádegisverð og síðdegishressingu með börnunum skulu einungis borða það sem er á boðstólum hverju sinni.  Við erum fyrirmynd barnanna og matvendni telst ekki til  góðra siða sem við viljum hafa fyrir börnunum.  Hafi starfsmenn með sér nesti í vinnuna, skal það eingöngu borðað á kaffistofunni.

Símanotkun

Notkun farsíma  í vinnutíma er óheimil, nema um neyðartilfelli sé að ræða og þá með samþykki deildarstjóra.  Starfsmenn hafa að sjálfsögðu aðgang að síma leikskólans, innan skynsamlegra marka.

Starfsmannafundir

Á tímabilinu september-maí eru á u.þ.b. fjögurra vikna fresti haldnir starfsmannafundir.  Fundirnir eru til skiptis á  þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum.  Greidd er fyrir þá yfirvinna eins og kjarasamningar gera ráð fyrir.

Á starfsmannafundum fer m.a. fram ýmis fræðsla, skipulagning, upplýsingaöflun og upplýsingastreymi ásamt því að þar fer oft fram mikilvæg umræða og ákvarðanataka.

Starfsmönnum er skylt að mæta á starfsmannafundi

Upplýsingastreymi

Á hverjum morgni fyrir kl. 8:30, er leikskólastjóri búinn að skrifa upplýsingar dagsins á töflu í kaffistofu. Hver deild sendir starfsmann til að sækja þessar upplýsingar og skrá í dagbók deildarinnar. Dagbókin er hugsuð sem skráningartæki og einnig til þess að upplýsingar séu aðgengilegar fyrir starfsmenn.

Deildarstjórafundir                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                     

Deildarstjórafundir eru haldnir einu sinni í viku, klukkutíma í senn.  Þar eru ýmis mál rædd er varða innra starf leikskólans, skipulag, stjórnsýslulegar ákvarðanir o.fl.  Þessir fundir eru einnig  ætlaðir til að koma upplýsingum áleiðis og til að fylgja eftir skóladagatali.  Skólastjórar sitja annan hvern fund og matráður kemur inn á fyrsta fund hvers mánaðar.

Deildarfundir

Deildarfundir eru haldnir einu sinni  í mánuði, klukkutíma í senn, í framhaldi af starfsmannafundi.

Veikindi

Veikindi skal tilkynna til leikskólastjóra að kvöldi eða fyrir kl. 8:15, því mikilvægt er að réttar upplýsingar séu skráðar á upplýsingatöflu í upphafi dags, einnig svo hægt sé að leysa málin ef mannekla er í húsinu.

Þegar heilsu er náð, þá vinsamlega látið leikskólastjóra vita hvenær þú ert aftur væntanleg / ur til vinnu.

Vottorð

Samkvæmt kjarasamningum á fastráðið starfsfólk að skila læknisvottorði eftir 5 daga veikindi.  Starfsmanni með tímabundna ráðningu er skylt að skila læknisvottorði fyrir öll veikindi.   Leikskólastjóri getur þó krafist vottorðs, þyki honum ástæða til.

Læknisvottorð er einungis tekið gilt ef veikindi eru tilkynnt lækni á fyrsta degi veikinda og skal það koma fram á vottorðinu. 

Veikindi barna

Lögum samkvæmt  er réttur starfsmanna til launaðra veikindadaga barna 10 dagar á ári.  Um vottorð vegna veikinda barna gilda sömu reglur og um veikindi starfsmanna.

Sumarfrí

Sumarorlofstími starfsmanna leikskóla er mismunandi eftir því í hvaða stéttarfélagi þeir eru.

Starfsmannafélag Akraneskaupstaðar = 1/6 – 30/9

Verkalýðsfélag Akraness = 1/5 – 30/9

Félag leikskólakennara = 15/5 – 15/9

Fastráðinnstarfsmaður ávinnur sér orlofsrétt sem nemur 2 dögum fyrir hvern unninn mánuð á tímabilinu 1. maí til 30. apríl.

Æskilegt er að starfsmaður taki allt sumarfríið á sumarorlofstímanum, en við höfum leyft fólki að geyma 3-5 daga sem hægt er að nota t.d. til að lengja helgi um 1 eða 2 daga.  Þessi leyfi er eingöngu hægt að taka með samþykki leikskólastjóra og í samráði við deildarstjóra, ef aðstæður í húsinu leyfa.   Orlofstöku skal lokið fyrir áramót.

Leikskólinn lokar í tvær vikur í júlí.

Aukafrí

Ef starfsmaður þarf aukafrí, þ.e.a.s. frí utan orlofstíma, skal hann leita til síns deildarstjóra.  Hann metur ávallt hvort hægt sé að veita frí og í samráði við leikskólastjóra ef um lengri tíma er að ræða.

Hafa skal í huga að ef einn starfsmann vantar, þarf hitt starfsfólk deildarinnar að leggja á sig meiri vinnu.   Um þetta þarf að ríkja gagnkvæmur skilningur.

Allir þurfa að leggja sitt af mörkum til að viðhalda góðu samstarfi.

Að fara í klippingu, til læknis eða tannlæknis

Þeir starfsmenn sem eru í hlutastarfi (minna en 100%) eru vinsamlegast beðnir að sinna þessum erindagjörðum utan vinnutíma, sé það mögulegt. Ef starfs e

Ef starfsmaður þarf að sækja læknisþjónustu til Reykjavíkur, fær hann til þess veikindaleyfi og gilda þar sömu reglur og í veikindum, þ.e. lausráðinn starfsmaður þarf að skila læknisvottorði.

Starfsmannasjóður

Mánaðarlega greiða starfsmenn 500 kr. í starfsmannasjóð.  Hlutverk sjóðsins er að standa straum af tækifærisgjöfum til starfsmanna og til að greiða upp í kostnað við skemmtiferð starfsmanna, sem er árviss atburður.

Skipulagsdagar

Skipulagsdagar eru þrír á ári.  Á haustönn áður en skipulagt starf vetrarins hefst og fyrsti virki dagur hvers árs.  Þriðji dagurinn helst í hendur við skipulagsdag grunnskólanna og er það ákvörðun leikskólastjóra hvaða dagur verður fyrir valinu. Það liggur þó fyrir strax á haustdögum. Á skipulagsdögum er unnið að skipulagi vetrarins, haldin námskeið eða fyrirlestrar.

Reykingar

Samkvæmt reglum Hollustuverndar ríkisins og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga eru reykingar bannaðar í leikskólum og á lóð þeirra.  Starfsmönnum er ekki heimilt að reykja í kaffitímum, þar sem viðveruskylda er í leikskólanum á meðan á vinnutíma stendur.

 

 
Teigasel | Laugarbraut 20 | 300 Akranes | Sími: 431-1898 | teigasel@akranes.is