VIÐBRAGÐSÁÆTLUN ALMANNAVARNA
Öllum ráðuneytum og undirstofnunum þeirra, ásamt sveitarfélögum og stofnunum á þeirra vegum, ber skylda til að gera viðbragðsáætlanir til að takast á við afleiðingar neyðaástands, skv 15. grein laga um almannavarnir, nr. 82/2008
Í ágúst 2009 fengu allar skólastofnanir sent sniðmót til að auðvelda hverjum skóla sína áætlanagerð, en jafnframt var markmiðið að tryggja skipulögð og samræmd viðbrögð þegar og ef til inflúensufaraldurs kæmi.
Við í Teigaseli höfum lokið við að gera okkar viðbragðsáætlun, en hún nýtist ekki eingöngu þegar inflúensa (H1N1) gengur yfir, heldur eigum við hana og getum virkjað hana hvenær sem yfirvöld mæla svo fyrir.

Nánari upplýsingar um inflúensu (H1N1) er að finna á http://influensa.is/