Starfið á Hákoti

Á Hákoti viljum við efla:

  • sjálfstraust, sjálfshjálp og sjálfsmynd
  • getu barna til að mynda góð tengsl við börn og fullorðna
  • færni til að tjá tilfinningar sínar og lesa í tilfinningar annarra
  • færni til að leysa vandamál í samskiptum við aðra
  • færni til að bera virðingu fyrir umhverfinu og samfélaginu

Okkar helstu viðfangsefni

Stærðfræði

  • Stærðfræði er í flestu sem við gerum og tengjum við markvisst stærðfræði inn í flest þau viðfangsefni sem við tökumst á við
  • Markmiðið er að kynna börnum fyrir formum, litum og tölustöfum í gegnum leik.

Málörvun

  • Mikil áhersla er lögð á málörvun í leik og starfi
  • Við byrjum t.d. alla daga á því að fara yfir hvaða dagur sé, mánuður og ár
  • Notum tákn með tali
  • Vinnum með Lubba.
  • Lesum bækur
  • Syngjum

Leggjum orð á daglegar athafnir

Frjáls leikur

  • Leikur er aðalnámsleið barna, því leggjum við mikla áherslu á að börnum gefist kostur á að leika sér frjálst,
  • Börn læra að setja sér mörk og læra á mörk annarra í gegnum leik
  • Í gegnum leik eflast börn í félagslegum samskiptum
  • leikurinn veitir börnum kost á að virkja ímyndunarafl sem ýtir undir skapandi hugsun.


Sköpun og skynjun

  • Börnum gefst kostur á að vera skapandi í leikskólanum
  • Markvisst vinnum við með skynjun og veitum þeim kost á að kanna ýmislegt með því að nota skynfæri sín.
  • Við vinnum með opinn efnivið, sem ýtir undir að þau þurfi að skapa sjálf og finna útúr því hvernig nota eigi efniviðinn.


Lífsleikni

  • Starfið á að efla félags- og tilfinningaþroska barna
  • Unnið er með Blæ sem er vináttuverkefni barnaheilla