Orðaforðavinna í Teigaseli
Í Teigaseli er lögð áhersla á að efla orðaforða barna og æfa tákn orða sem unnið er með hverju sinni. Unnið er með þemu sem eru breytileg eftir mánuðum, þemun byggja á orðum sem æskilegt er að börn hafi á sínu valdi. Orðaforðalistarnir sem hafðir eru til hliðsjónar eru gefnir út af menntamálastofnun og eru aðlagaðir að aldri barna. Samhliða þessum orðum komum við til með að nota tákn með tali sem byggir á að orð séu táknuð með höndum og látbragði, þetta auðveldar börnum tjáningu og skilning á orðum sem og eykur skilning á hugtökum með sjónrænum hætti.
Orðalistarnir og táknin sem verið er að leggja áherslu á í hverjum mánuði hanga í fataherbergjum barnanna
Þemu mánaðar:
Unnið er með orðin á ýmsa vegu í daglegu starfi leikskólans bæði í leik, söng og starfi.