Á morgun, 13. nóvember, ætlum við í Teigaseli að halda upp á Alþjóðlegan dag sykursýkis, sem er formlega haldinn ár hvert 14. nóvember.
Í tilefni dagsins hvetjum við öll börn og starfsfólk til að mæta í bláum fötum. Blái liturinn er alþjóðlegt tákn vitundarvakningar um sykursýki og táknar samstöðu, stuðning og von. Blái hringurinn er jafnframt alþjóðlegt tákn sykursýki og stendur fyrir einingu fólks um allan heim í baráttunni gegn sjúkdómnum.
Í Teigaseli starfar einnig einstaklingur sem er með sykursýki af tegund 1. Með því að klæðast bláu viljum við sýna samstöðu og um leið vekja athygli á mikilvægi þess að fólk með sykursýki geti tekið fullan þátt í starfi, leik og samfélagi eins og aðrir.
Við hlökkum til að sjá sem flesta í bláu á morgun og saman sýnum við stuðning, samstöðu og aukinn skilning á sykursýki.
💙 Mætum í bláu og látum gott af okkur leiða! 💙