Innleiðing Heillaspora hafin
Teigasel hefur hafið innleiðingu Heillaspora (e. Nurture).
Heillaspor er heildræn og tengslamiðuð nálgun í skóla- og frístundastarfi þar sem áhersla er lögð á öryggi, tengsl, inngildingu og virka þátttöku allra barna. Fræðilegur grunnur Heillaspora leggur áherslu á að góð tengsl og tilfinningin fyrir því að tilheyra séu mikilvægar forsendur fyrir vellíðan, þroska og námi.
Innleiðingin er þróunarferli sem felur meðal annars í sér fræðslu, ígrundun og sameiginlega þróun starfshátta. Markmiðið er að tengslamiðuð og inngildandi vinnubrögð verði sýnilegur og sjálfsagður hluti af menningu og daglegu starfi Teigasels.
Nánar má lesa um Heillaspor:
https://island.is/s/midstod-menntunar-og-skolathjonustu/heillaspor