Tengjumst í leik (e. Invest In Play) Foreldranámskeið

Þá er komið að því að halda næsta foreldrafærni námskeið.
Ný námskeið hefjast 2. september og verða á þriðjudögum frá kl 15-17
Námskeiðið er 12 vikna námskeið sem byggir á gagnreyndum aðferðum í vinnu með börnum og foreldrum. Tengjumst í leik er námskeið þar sem foreldrar efla sjálfstraust sitt í foreldrahlutverkinu og skapa trygg og góð tengsl við börnin sín. Þannig geta foreldrar betur stutt náms- og félagsfærni, ásamt því að stuðla að aukinni tilfinningastjórn barna sinna.
 
,,Mér hafa finnst námskeiðið hjálpa mér að takast á við foreldrahlutverkið“ Ummæli foreldris sem sat námskeiðið á Akranesi.
Þið skráið ykkur fyrir 27. ágúst 2025 með því að nota QR kóðann í auglýsingunni (Best að stækka myndina svo QR kóðinn verði skýr)
 
Námskeiðið er ykkur að kostnaðarlausu og vistun er í boði á meðan á námskeiðinu stendur.
Við hvetjum ykkur eindregið til að nýta ykkur þetta einstaka tækifæri.