Alþjóðlegur dagur sykursýkis - Klæðumst bláu

Á morgun, 13. nóvember, ætlum við í Teigaseli að halda upp á Alþjóðlegan dag sykursýkis, sem er formlega haldinn ár hvert 14. nóvember. Í tilefni dagsins hvetjum við öll börn og starfsfólk til að mæta í bláum fötum. Blái liturinn er alþjóðlegt tákn vitundarvakningar um sykursýki og táknar samstöðu, stuðning og von. Blái hringurinn er jafnframt alþjóðlegt tákn sykursýki og stendur fyrir einingu fólks um allan heim í baráttunni gegn sjúkdómnum.